Núna er rúmlega vika síðan við vorum síðast í landi. Við fygdum vinnubátnum hingað út á næstum sama stað og síðast, en það er verið að gera við brunn á um 250 metra dýpi. Þetta átti ekki að vera langt verkefni en vegna veðurs fór viðgerðabáturinn inn eftir 3 daga og átti að koma aftur í dag, en það verður sennilegat ekki fyrr en á mánudaginn. Ástæðan fyrir að hann fór er of mikill öldugangur en þeir geta unnið í allt að 6 metra ölduhæð. Það er sem sagt búið að vera veltingur í nokkra daga núna og á að toppa á miðnætti í kvöld með +12 mertum og 20 m/sek. Á þriðjudaginn verður svo komið um 1 meters alda…
Annars telur maður dagana sem maður á eftir samviskusamlega og eru þeir nú 12. Því er ekki að leyna að það er mikil tilhlökkun að komast heim til konu og barna.
Ég reyni auðvitað að fylgjast vel með handboltanum en með EKKERT sjónvarp/ísl. útvarp og MJÖG takmarkað internet er það ekki létt en ég geribara eins og “strákarnir okkar” og “geri mitt besta”