Loksins kominn heim. Núna verður slappað aðeins af og svo farið að vinna fljótlega aftur. Í dag er Fastelavn og þá eru borðaðar rjómabollur og svo klæða krakkarnir sig út í kvöld og ganga í hús til að fá nammi eða eitthvað gott. Haukur Jákup og David Thor eru að planleggja búningana fyrir kvöldið. Þeir fara báðir að slá köttinn úr tunnuni í dag. Ég ætla að setja inn myndir á morgun.
Ætlaði líka að baka nokkrar vatnsdeigsbollur með rjóma í dag.
Strákarnir eru farnir að mála myndir auðvitað koma smá sýnishorn á síðuna fljótlega….