Kuldaboli

Þegar ég kom heim af sjónum fyrir tæpum 2 vikum var snjór í fjalltoppum en svo gott sem autt neðar. Síðan þá hefur snjóað vel og mikið. Það kom svo að því á mánudaginn s.l. að ég þurfti að moka bílana lausa og það eru orðin nokkuð mörg á síðan ég hef þurft þess, reyndar fer maður og mokar tröppurnar og innganginn reglulega en það samt erfitt að halda þessu auðu. Færeyjingar segja við mig að það eru mörg ár síðan að það hafi verið svo kalt og snjór legið svo lengi á vegum. Það gengur hægt að ryðja vegi þrátt fyrir að öll tæki séu í gangi, það er reynt að halda öllum vegum opnum og ég sá að það var verið að vinna í grefstri í gærkvöldi hérna á Ströndum en þar voru bara teknar “litlu” göturnar og brekkurnar. Stærri vegir í bænum eru færir en það liggur 10-15 cm snjór, þjappaður, á veginum. Það verður vonangi að það verði búið að ryðja það áður en það fer að rigna og allt breyst í ís… Maður verður þá bara að fá sér keðjur, ekki satt.

Drengirnir skemmta sér vel í snjónum, renna sér og grafa mikið.

About birnir

I´m from a small country in north europe, and currently living in a smaller one...
This entry was posted in Fréttir. Bookmark the permalink.

Comments are closed.