Þá er runninn upp “Ólavsvökudagur” eða Ólavsøka eins og það heitir hérna í Færeyjum. Mig hlakkar mikið til að fara og sjá hvernig svona hátíðarhald fer fram en þetta er í fyrsta skipti sem ég eg hérna í Færeyjum á Ólavsøku. Það má kanski bæta því við að ég fer að hjálpa félaga mínum að selja mat á hátíðarsvæðinu næstu 2 nætur.
þeir sem eiga þjóðbúninga reyna auðvitað að fara á Ólavsøku í þeim og það gerir hátíðarhöldin afskaplega litrík og lífleg, því að hérna eru þjóðbúningarnir í mismunadi litum og gaman að sjá hvursu fallegir þeir eru.