Nóg að gera…

Við feðgarnir njótum þess að hafa frí saman en í dag höfum við gert við hjólið hjá Hauki Jákup og byrjuðum að gera við hjólið hjá pabbanum en það stefnir í doldið mikla vinnu…
Veðrið var svo gott í dag, strákarnir fóru út á fótboltavöll að leika sér og það endaði með að Niels Jákup þurfti að fara á sjúkrahúr með tvíbrotinn litlafingur :(
Ég fór svo með Hauk Jákup, David Thor og Jack út að Prestá, sem er á, þar sem búið er að gera smá stífu og þar með myndast pollur þar sem krakkar geta leikið sér. Við fórum með 2 gúmíbáta með okkur, þó að það sé nóg af  ”bátum”  þarna (læt inn myndir fljótlega). Þegar við komum heim grilluðum við kjöt og pylsur. Þar á eftir var hafist handa við að setja saman skáp fyrir útiföt á ganginn, verður klárað á morgun. Svo er stefnan sett á að byrja á kjallaranum í næstu viku… auk þess sem allt stefnir í að ég fari á “næturvaktir” í bakaríinu í næstu viku (til að byrja með) og svo er auðvitað Ólavsøka líka (miðvikudag og fimmtudag) og þar verð ég líka að selja mat…. ætli maður verði ekki að reyna að legja sig í “pásunum”.

Posted in Fréttir | Leave a comment

Komnir heim og öll voðalega ánægð að sjá okkur aftur…

Strákarnir eru komnir í frí, leikskólinn lokaður og auðvitað sumarfrí í skólanum. Jana fer í frí í næstu viku og ég fer að vinna í næstu viku, þannig að þetta reddast allt saman. Við drifum okkur í bíó í gær og sáum Shrek 3D, voða gaman, og svo fórum við í 1 árs afmæli í dag, en það var guðsonurinn Markús sem átti afmæli, nýkominn frá Ítalíu. Veðrið hefur ekki verið neitt sérstakt síðan við fórum á frónið en Jana er búin að panta sól og hita í næstu viku…   (fyrir þá sem ekki vita þá er Ólavsvaka í næstu viku!)

Posted in Fréttir | Leave a comment

Sumarfrí

Við strákarnir skelltum okkur til Íslands í 2 vikur. Við höfum verið á Höfn allann tímann og ofsalega gaman. VIð höfum verið í sundi næstum hvern dag. Haukur Jákup fór á sjó með Stjána frænda á Jónu Eðvalds, Hákon Logi fór líka með sem var mjög gott. Haukur fann fyrir smá sjóveiki fyrsta daginn en það lagaðist svo. Við höfum svo farið í siglingu á Jökulsárlónið, gönguferð um Ingólfshöfða, náðum í Ösku úr eyjafjallajökli (og úr Öræfajökli sem var árið 1322) til að taka með til Færeyja, gengum uppað Svartafossi í Skaftafelli, skemmtum okkur vel á Humarhátið, fórum uppí Hellisholt að athuga með kartöflurnar og reka rollur (þó að það þýði ekkert, af því að þær koma strax aftur), fórum í pottana í Hoffelli, og út að borða í Smyrlajörgum, fengum fullt af pizzum á Ósnum, skoðuðum “nýja” húsið hjá (langa)ömmu í Miðtúninu, snyrtum garðinn á Vogabrautini og fórum auðvitað uppí kirkjugarð…

Frábærð ferð, strákarnir eru alveg að finna sig á Höfn og þá sérstaklega sundlaugina, engjaþykkni og vespuna hjá ömmu (afa).

þegar þessi færsla fer á netið erum við svo staddir í Norrænu á leiðinni heim aftur og framundan er þá smá sumafrí, Ólavsvaka, skólastart og ferming þann 10.10.10.

Við viljum svo enda á að þakka ÖLLUM fyrir frábærar móttökur og þið hin sem við sáum ekki í þesari ferð segjum við: “sjáumst bara næst…”

Posted in Fréttir | Leave a comment

Sumar?

samkvæmt dagatalinu á sumarið að vera komið en það eru ekki komnir margir sólskinsdagar ennþá, en nokkrir þó og við erum nokkuð laus við rigninguna líka… það vantar nokkrar gráður og þá er þetta gott.

Annars styttist í að við feðgar leggjum land undir fót og skellum okkur á frónið. Við munum birtast á humarhátðiðinni og verðum í um 2 vikur. Síðan er það vinna þegar ég kem aftur til Færeyja.

Ég hef verið að þjálfa fótbolta í sumar en það er líð í bestu deildinni, meistaraflokkur kvenna. Það voru svo sem ekki amrgir sem áttu von á nokkru frá okkur en núna þegar tímabilið er að verða hálfnað erum við í 3ja sæti og með góða möguleika á að ná í 2. sætið fyrir sumarfríið, auk þess að vera komin í úrslit í bikarkeppninni en það eru um 15 ár síðan liðið var síðast í úrslitaleik í bikarnum og 18 ár síðan þær urðu færeyjameistarar síðast. Það fylgir þessu mikil stemming í bænum, margir sem mæta á leiki hjá okkur og hvetja okkur áfram. fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með kvennboltanum hérna og liðið okkar heirir “Skála IF” [SKÁ])

David Thor er líka í boltanum og á einmitt að fara að keppa um helgina og ég mun henda inn nokrum myndum fljótlega…

Posted in Fréttir | Leave a comment